molta

Aukin vinnsla og þróunarstarf árið 2011 Yfir 1000 tonn í fyrsta skipti Íbúar á Akureyri áhugasamir um flokkun úrgangs Framleiðsla Moltu rúm 5000 tonn árið

Fréttir

Aukin vinnsla og þróunarstarf árið 2011

Móttekið magn úrgangs hjá Moltu ehf. jókst um tæp 20% á árinu 2011.  Matvælastofnun gaf út rekstrarleyfi fyrir jarðgerð Moltu í júní sl..  Full heimild er þvi skv. núgildandi reglum til að nýta moltuna. Þá gekk Molta á árinu frá viljayfirlýsingu með norska fyrirtækinu HØST Verdien i Avfall AS um þróun afurða úr moltu. Lesa meira

Yfir 1000 tonn í fyrsta skipti

Í sláturtíðinni í október sl. var unnið úr 1.012 tonnum af lífrænum úrgangi og stoðefnum hjá jarðgerðarstöð Moltu.

Lesa meira

Íbúar á Akureyri áhugasamir um flokkun úrgangs

Í október síðastliðinn hófst innleiðing söfnunar- og flokkunarkerfis og fyrir lífrænan úrgang frá heimilum á Akureyri. Lífrænn úrgangur sem safnað er frá heimilum er fluttur til jarðgerðar í jarðgerðarstöð Moltu á Þveráreyrum. Úrgangurinn getur því hæglega endað sem gróðurmold eða jarðvegsbætir í blómabeðum, trjálundum og grasflötum bæjarbúa. Lesa meira

Framleiðsla Moltu rúm 5000 tonn árið 2010

Jarðgerðarstöðin tók á móti 5.247 tonnum af úrgangi á árinu 2010. Til samanburðar má geta þess að á sama tímabili voru urðuð 9.638 tonn á Glerárdal. Það má því segja að urðun úrgangs hafi minnkað um 35% vegna tilkomu Moltu. Frá því að Molta tók til starfa 16. júní 2009 hefur stöðin tekið á móti rúmum 8.000 tonnum af úrgangi til endurvinnslu. Lesa meira

Október 2010 stærsti vinnslumánuður hjá Moltu frá upphafi

Tilbúin molta
Nú í október voru unnin 900 tonn af lífrænum úrgangi og stoðefnum hjá jarðgerðarstöð Moltu. Þrátt fyrir að úrgangur frá sauðfjárslátrun á Húsavík væri 20 tonnum minni en í október 2009 var heildar vinnslan 90 tonnum meiri en árið 2009. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf