Gjaldskrá og skilmálar Moltu
Móttökugjöld
Tók gildi 1.janúar 2026
Hráefni
Kr/kg án vsk
Matarleifar sérsafnað
33,1
Matvæli í umbúðum
38
-
Sláturúrgangur
27,3
-
Hreint kurlað timbur
5
Ölgerðarhrat
5
-
Pappír og dagblöð
16
Skilmálar Moltu ehf. gilda.
Virðisaukaskattur leggst ofan á við útgáfu reiknings.
Skilmálar
Móttaka á hráefni Moltu ehf. er háð gjaldskrá félagsins eins og hún er samþykkt af stjórn hverju sinni.
Matarleifa sérsafnað
Matarleifar skulu vera flokkaðar og án aðskotahluta eða mengandi efna samkvæmt flokkunarleiðbeiningum.
Ferskleiki og ástand
Matarleifar skulu afhentar í fersku ástandi. Þær mega ekki hafa verið geymdar svo lengi að þær séu orðnar rotnar, illa lyktandi, maðkaðar eða að öðru leyti óhæfar til meðhöndlunar.
Raki og vökvamagn
Matarleifar skulu ekki vera of blautar eða vatnsmettaðar. Ekki er heimilt að afhenda farm sem inniheldur óhóflegt magn af vökva þannig að leki úr gámi við flutning eða losun. Úrgangshafi ber ábyrgð á að ílát séu þétt og varin fyrir úrkomu þannig að ekki safnist vatn í farm. Ef mikið er um aðskotahluti, óviðunandi ástand eða vatnsmettun í farmi, áskilur Molta sér rétt til að hafna móttöku eða innheimta álagsgjald 30% af gjaldi farmsins, þó að lágmarki 50.000 kr.
Matvæli í umbúðum
Matvæli í umbúðum skulu afhent í því formi að hægt sé að vinna úr þeim án mikillar forvinnslu.
Ef farmur berst á brettum í lokuðum kössum eða að öðru leyti þannig að ekki sé unnt að setja hann beint í vinnslu, áskilur Molta sér rétt til að leggja á sérstakt viðbótargjald vegna forvinnslu og meðhöndlunar. Slíkt gjald er ákveðið í samræmi við umfang og vinnu sem þarf til að gera farminn móttækilegan.
Sláturúrgangur og blóð
Með sláturúrgangi er átt við allt hráefni frá sláturdýrum, hvort sem er frá sláturhúsum eða kjötvinnslum.
Úrgangshafi skal tryggja að aðeins sé afhentur úrgangur úr 3. áhættuflokki nema innihaldi meltingarvegar og búfjáráburð sem er í 2. áhættuflokki. Bílstjóri skal afhenda vottorð / viðskiptaskjal því til staðfestingar samkvæmt kröfum frá MAST.
Sláturúrgangurinn skal vera hreinn – laus við alla aðskotahluti. Ef aðskotahlutur, til dæmis járn, veldur skemmdum á búnaði Moltu, áskilur Molta sér rétt til að rukka aukagjald og/eða tjónabætur.
Kurlað timbur og trjágreinar
Timbur sem tekið er til vinnslu skal vera hreint og laust við plast og aðra aðskotahluti eða annan úrgang. Timburvinnsla skal fara fram á svæði þar sem tryggt er að annar úrgangur geti ekki mengað timbrið.
Partastærð skal vera að hámarki (L x B x H í millimetrum) 100 x 12 x 12. Tryggja skal með sigtun eða öðrum búnaði að ekki slæðist með stærri einingar. Ef aðskotahlutur, til dæmis járn, veldur skemmdum á búnaði Moltu, áskilur Molta sér rétt til að innheimta aukagjald og/eða tjónabætur.
Ölgerðarhrat, pappír og dagblöð
Skal vera hreint og laust við aðskotahluti eða annan úrgang. Söfnun og ferming þessara efna skulu fara fram á svæði þar sem tryggt er að annar úrgangur geti ekki mengað þau.
Vigtun, fylgiskjöl og losun
Allt hráefni skal vigtað á löggiltri vog og fylgja skal vigtarseðill. Farmi án vigtarseðils getur verið vísað frá. Við hverja sendingu af aukaafurðum dýra skal fylgja viðskiptaskjal samkvæmt reglugerð (EB) 142/2011, eða það sent rafrænt á vakt@molta.is fyrir komu. Á skjalinu þarf að koma fram: tilvísunarnúmer, upplýsingar um sendanda, flutningsaðila, viðtakanda (Molta ehf.), magn, lýsingu á efni og dagsetningu með undirskrift sendanda.
Losun hráefnis fer ávallt fram í samstarfi við starfsmenn Moltu. Við óskum eftir að hráefni berist í gámum með fallhlera, en ekki með vængjahurðum, þar sem síðarnefndu gámar auka slysahættu og óþrifnað á plani.
Önnur atriði
Molta gerir kröfur um að afhent hráefni sé í viðunandi ástandi, meðal annars með tilliti til öryggis, hreinlætis, ferskleika og lyktaráhrifa, sem og annarra þátta sem geta haft áhrif á vinnslu eða starfsemi stöðvarinnar. Ef upp kemur ágreiningur um hvort hráefni sé hæft til móttöku gildi ákvörðun Moltu.
Komi upp sérstök atvik, svo sem að hráefni sé afhent í röngum umbúðum, þarfnist meiri vinnu en venja er um sams konar hráefni, eða valdi töfum á vinnslu vegna aðskotahluta sem stöðvar ferlið, áskilur Molta sér rétt til að innheimta auka gjald í samræmi við umfang vinnu sem til fellur.