Hvað er molta?
Jarðvegsbætandi efni
Kraftmolta verður til við niðurbrot lífræns úrgangs (safnhaugamold). Fullþroskuð molta er dökk, laus í sér og með milda, sæta lykt.
Hún er ólík gróðurmold þar sem hún inniheldur lítið sem ekkert af ólífrænum efnum (t.d. sandi) og er því mun næringarríkari. Kraftmolta er fyrst og fremst jarðvegsbætir og áburðargjafi, en kemur þó ekki að fullu í stað hefðbundins áburðar.
Eiginleikar
- Eykur lífvirkni í jarðvegi
- Næringarrík
- Hitastig í framleiðslu fer yfir 70°C → drepur sýkla og illgresisfræ
- Laus við óæskileg efni
Notkun – mikilvægt að hafa í huga
Kraftmolta er sterk og skal:
- blanda við jarðveg (eins og húsdýraáburð)
- ekki setja beint að rótum plantna
Dæmi um notkun
Grasflatir
- Þunnt lag vor eða haust
- Má blanda við sand (valfrjálst)
Þökur
- Jafna undirlag með moltu
- Hægt að leggja þökur beint á grófsigtaða moltu
Trjáplöntun og pottaplöntur
- Setja í gróðurholu
- 10–15 cm lag í kringum plöntu
Bakkaplöntur
- 1–2 matskeiðar undir plöntu
- Hnefafylli ofan á
- Hefur sýnt góðan árangur í rýrum jarðvegi
Sáning
- Blanda við efsta lag (allt að 50%)
- Hentar vel í blómabeð
Illgresisvörn
- Hreinn moltuþekja dregur verulega úr illgresi (1–2 ár)
- Of þykkt lag getur skaðað ungar plöntur
Uppgræðsla og ræktun
- Rýrt land: sýnileg bæting gróðurs
- Kornrækt: aukin uppskera og mögulegur sparnaður á tilbúnum áburði
Reglugerð
Samkvæmt reglugerð nr. 674/2017:
- Ekki bera moltu á beitar- eða fóðurland eftir 1. nóvember
- Land skal vera beitarfriðað til 1. apríl
Athugið: Leiðbeiningar byggja að hluta á reynslu notenda, ekki eingöngu vísindalegum rannsóknum.