Þú ert orkugjafi

Auglýsing um mikilvægi þess að flokka allar matarleyfar í Grænu körfuna svo þær endi í moltugerð hjá Moltu en ekki í urðun með tilheyrandi mengun.

Fyrir hvert kíló að matarleifum sem skilað er í jarðgerð hjá Moltu minnkar losun á CO2 út í andrúmsloftið um eitt kíló. Það að flokka rétt matarleifar er því mjög mikilvæg loftslagsaðgerð.

Moltan er jarðvegsbætir og er nýtt í ýmsa starfsemi t.d. í Lystigarðinum, á gólfvellinum og í landbúnað. Moltan frá Moltu ehf. er aðgengileg öllum bæjarbúum Akureyrar þeim að kostnaðarlausu, hægt er að nálgast moltuna yfir sumartíman á Krókeyri sunnan við Mótorhjólasafnið og á brennustæðið sunnan við gámasvæðið í Réttarhvammi.